Title : Húsabætur á sveitabæjum: Uppdrættir og áætlanir
Author : Jón Sveinsson
Release date : November 29, 2006 [eBook #19960]
Language : Icelandic
Credits
: Produced by Jóhannes Birgir Jensson, Lissa Potter and the
Online Distributed Proofreaders Europe at
http://dp.rastko.net
Sýnilega ber tíminn það með sjer, að menn láta sjer almennt mestu varða að bæta hýbýli sín; þeir sjá orðið og sýna, að ekki verður bætt úr því tjóni, sem torfbæirnir hafa í för með sjer, með neinu öðru en velgerðum og hentugum timburhúsum, að þau borga sig hlutfallslega innan skamms, og að vert sje að klífa til þess þrítugan hamarinn.
Tilgangurinn með uppdráttum þessum og áætlunum er því sá, að þeim, sem vilja koma sjer upp timburhúsum í stað torfbæja, gefist kostur á nokkrum leiðbeiningum, sem gæti orðið þeim til stuðnings að ýmsu leyti, svo sem til sparnaðar, betri hagnýtingar á efni og rúmi, og að því er snertir ýmislegt fyrirkomulag og þægindi á húsinu við afnot þess, til traustleika og skjóls o.s.frv.
Að helztu menn í hreppi hverjum kynni sjer sem bezt uppdrætti þessa og áætlanir, er eigi einungis þeim sjálfum gott, heldur áríðandi fyrir hreppinn, þar sem þeir munu bæði skilja bezt, hver not geta að þeim orðið, og þeir eru leiðtogar og hvatamenn sveitunga sinna.
Aptan við hverja áætlun eru ýmsar athuganir, og bent á ýms áríðandi atriði viðvíkjandi uppdrættinum næst á undan, og er mjög áríðandi, að menn gjöri sjer ljósa grein fyrir þeim afbrigðum, sem talað er um að gjöra megi frá sjálfum uppdráttunum.
Kjallari undir eldhúsi og búri (eða öllu húsinu) 2 áln. 6 þml. neðanjarðar, 18 þml. ofanjarðar, eins og grunnurinn segir til.
Aurslár, gólfslár og bitar með 5×5 þml. gildleika; allir aðrir viðir í grindinni 4×4 þml., nema 2×4 þml. í skúrinn, þó 4×4 þml. í undirgrindinni i skúrnum.
Undir lopt niðri 3-½ alin (undir bita), stafir 9 fet á hæð og sperruleggir sömul. 9 fet.
Öll milliþil í húsinu einföld, úr 5/4 þml. borðum, strikuðum og plægðum. Þrjár óstrikaðar spjaldahurðir: 1 niðri, 2 uppi.
Frá hitavjelinni í stofunni má leggja reykpípu (járnpípu) upp um loptið, til þess að veita hita í efra herbergið, og láta hana liggja inn i reykháfinn 8 þml. frá þaki.
Upp í grindina milli þilja skal troðið fornu heyi, en óskemmdu þó og vel þurru, eða þá vel þurrum reiðing og moldarlausum. Utan á grindina skulu lögð 5/4 þml. borð, þurr og plægð, en óhefluð, og pappi þar utan yfir, næst járninu. Innan á grindina skal einnig leggja pappa og þilja síðan innan með strikuðum þilborðum, ⅝ eða ¾ þml. á þykkt. Sami borðviður í þak (undir járnið) og veggi. Leggja skal vel þurrt og moldarlaust torf milli sperra, festa því þar með þverlistum, er klemmt sje milli sperrukjálkanna, og mega þeir (listarnir) ekki standa inn af sperrunum. Þá skal negla pappa innan á sperrurnar og þilja síðan innan með plægðum þilborðum.
Tvö aðalherbergin skulu máluð og gluggar allir þrímálaðir utan og innan. Hin herbergin ferníseruð tvívegis, nema geymsluherbergi.
Í heilu gluggunum 14×14 þml. rúður, en hinum 12×12 þml. Allt járnið nr. 24.
Hafa má auðvitað skúr við báðar hliðar hússins að endilöngu. Þá breytist auðvitað áætlunin nokkuð. Og þá verður að færa búrgluggann á eldhússtafninn. Þá verður allt loptið uppi ein baðstofa. Stiginn má vera þar sem hann er á myndinni, en reykháfinn verður að færa út í aðra hliðina, eins og sýnt er á baðstofuhúsinu nr. 1 .
Sömu aths. eiga við um þetta hús og húsið A, nema hvað stafir og sperrur verða að sínu leyti lengri—3 áln. 16 þml. undir bita í húsinu B.
Herbergjaskipunin í þessu húsi sama og í húsi A, en herbergin öll stærri og 2 gluggar á stofunni. Hafa má stofuna niðri styttri, ef vill, og leggja til lengdarinnar á búri og eldhúsi á báðum húsunum (A og B).
Hafa má loptið uppi óhólfað sundur, í baðstofu stað, en færa þá reykháf og búrglugga eins og á A; hafa svo geymsluskúra við báðar hliðar hússins eptir endilöngu.
Úr gangi þeim, sem gengið er inn í gegn um skúr til eldhúss, geta einnig verið dyr til stofu. Skúrinn þeim mun lengri.
Sje loptið einungis notað fyrir baðstofu (óhólfað sundur), verður áætlunin nálægt 40 kr. lægri, og hafa þá 1 heilan glugga á stafni, í stað tveggja hálfra (á myndinni). Þilja fyrir uppganginn alla leið upp undir þak, með hurð á, sem fellur inn í baðstofuna.
Sama um þetta hús að segja að öðru leyti og húsið A. Einfalt lopt, allir milliveggir einfaldir, stofan niðri sje máluð og forstofan. Allir gluggar þrímálaðir. Hin herbergin ferníseruð. Undir bita 3 áln. 16 þml.
Í áætluninni er gjört ráð fyrir að hita sje veitt úr herberginu niðri upp um loptið upp í baðstofu með beinu járnpípunum.
Vilji menn hafa geymsluskúra fyrir báðum endum hússins, eins og það er breitt til, verður að hafa forstofudyrnar á hlið hússins (hinum megin hornsins, við það sem þær nú eru).
Aths. Þilið milli stofu og eldhúss tvöfalt. Stofa og forstofa með þiljulopti, og hið eina, sem málað verður; hitt ferníserað. Skúr 2-½×3-½ al. Hita veitt frá stofu til kvennaherbergisins.
Með fram annari hlið hússins má hafa geymsluskúr. Þilið milli vinnuhjúa (karla og kvenna) má nema burt, ef vill, og hafa þar baðstofu yfir um þvert húsið, líkt og á húsinu C, og dyr til baðstofu gegnt stiganum. Vilji menn halda milliþilinu, en þó spara ljós, má hafa op á þilinu fyrir lampa, er lýsir bæði herbergin í senn.
Sjá að öðru leyti aths. við húsið A.
Báðar stofurnar, forstofa og skrifstofa með þiljulopti; tvöfalt þil eptir miðju húsi endilöngu og þvers um milli stofu og eldhúss. Grind í milliveggjum, sperrur og skammbitar úr 4×4 þml. trjám, annarsstaðar úr 4-½×4-½ þml.; bitar og gólfslár úr 5×5 þml. trjám. Mála þarf forstofu, skrifstofu og báðar stofurnar niðri. Annað ferníserað. Einn þakgluggi, sem lýsa á geymsluherbergið, ef vill; annars rúða á þili yfir stiganum.
Til þess að fá geymsluskúr með allri norðurhlið hússins (E), verður að hafa þá glugga, sem eru á stofunni (til sömu hliðar og eldhúsið) á stafni hússins (hægra megin, er gengið er inn í forstofuna), og veit þá sá stafn í austur. Taka má skúr þann í burt, sem er á upp drættinum, og hafa innganginn til eldhúss í vesturenda skúrsins og þá þegar á hægri hönd inn í eldhúsið. Fellur þá hurðin inn í eldhúsið á sama stað og hún nú er, en til hægri: en stiginn er til vinstri handar.
Hita veitt frá dagl. stofu til kvennherbergis uppi. Sperrur, skammbitar og tvöföldu veggirnir úr 4×4 þml. viðum. Niðri allt málað, nema eldhús og búr, og ekki heldur haft þil neðan á bita í búri og eldhúsi. Svefnherbergi hjóna málað, hin ferníseruð. Tvöföld milliþil eptir því sem uppdrátturinn segir til, 1 þakgluggi yfir geymsluklefa og gangi. Á skúrnum 2 dyr, kjallari undir eldhúsi og búri eða allri stærð hússins. Gólfslár og bitar úr 5×5 þml. við. Hæð undir bita 4 ál.
Í skrifstofunni er gjört ráð fyrir steinolíuofni. Rúður í aðalgluggunum 16×15. Vængjahurðir milli stofanna, Annað eptir því sem segir við húsið A. Plægt lopt á skammbitum 5/4 þml. þykktheflað og þiljað á þá að neðan.
Vilji menn hafa skúra við hús F., ætti búrglugginn að færast á sömu hlið hússins sem eldhúsglugginn; skúr fyrir hinum stafninum og gangur þar í gegn til forstofu. Verða þá geymsluskúrar þvert fyrir báðum stöfnum hússins og framhlið snúið hvort heldur vill til austurs eða vesturs. Brotið þak má hafa, ef líkar, en þá missist það geymslupláss, sem ella fengist.
Breyta má, ef vill, hjúahýbýlunum og hafa baðstofu þvert yfir alla breidd hússins, líkt og á húsinu E.
Á þessu húsi ætti framstafninn að snúa í vestur. Kjallari undir allri baðstofunni, ef svo sýnist. Einn gluggi á suðurhlið. Aurslár og gólfslár 4×5 þml. Sillur, stafir og skástoðir 4×4 þml. Öll lausholt og sperrur 2×4 þml. Ekki má vera meira bil milli sperra en mátulegt fyrir eina torfubreidd. Eldavjelin sje vel þjett (frálaus), höfð í eldhúsi á sumrum, en baðstofu á vetrum, og lengja í reykpípunum. Troða heyi eða negla reiðing upp í millivegginn og þiljur beggja megin.
Þök og útveggir skulu gerðir eptir þeim reglum, som gefnar eru við hús A.
Sje skúr hafður til beggja hliða við baðstofu, verður lagið á húsi nr. 1 eins og á nr. 2. Með því fæst gott geymslurúm, bærinn verður traustari og að mun snotrari og kostnaðarminni að tiltölu.
kr. | a. | |
---|---|---|
8 trje 32 feta, 4 trje 26 feta 4×5 þml. á, 12 a. | 43 | 20 |
4 trje 26 feta, 4 trje 13 feta 4×4 þml. á 10 a. | 15 | 60 |
32 trje 8 feta, 8 trje 9 feta 4×4 þml. á 10 a. | 32 | 80 |
45 plankar 10 feta, 28 pl. 9 feta 2×4 þml. á 5 a. | 35 | 10 |
9 plankar 14 feta 2×6 þml. á 9 a. | 11 | 34 |
6 tylftir 14 feta borð á 9,92; 6 tylftir 12 feta gólfborð á 8,50 | 110 | 52 |
7 tylftir 14 feta borð á 9,63, 21 tylft 12 feta borð plægð, en óhefluð á 8,25 | 240 | 66 |
5 tylftir 8 feta borð í milliþil, strikuð og plægð, á 6,29 | 31 | 45 |
4 tylftir 12 feta borð 7×5/4 þml. óhefl., 4 tylftir 14 feta borð 7×1 þml. óhefl. 8,57 | 68 | 56 |
20 tylftir þiljuborð 12 feta 4 þml. 5,00, 52 tylftir 8 feta þiljuborð á 3,39 | 273 | 68 |
940 □ al. af pappa á 8 a. | 75 | 68 |
148 þakjárnsplötur á 2.00, 1600 naglar á 70 a. | 307 | 20 |
6 þús. 4 þml. á 2,30, 2 þús, 3. þml. á 1,20, 3
þús. 2-½ þml. á 0,90, 9 þús. 2 þml. 0,65 a., 1 þús. 1-½ þml. á 0,40 a., 1 þús. 1 þml. á 0,25 a., 1 þús. ½ þml. á 0,15 a., 9 þús. af pappasaum á 0,25 a., 2 þús. af galvanís. 1-½ þml. nögl. á 1,75 |
31 | 30 |
10 pd. zinkhv. á 0,35 a., 6. pd. kítti á 0,18 a., 5 pd. blýhvítu á 0,28 | 5 | 98 |
1 klinka 1,50, 5 pt. fernisolía á 70 a. | 5 | 00 |
7 pör galv. gluggahjörur á 40 a., 5 stofuskrár á 2,25 | 14 | 05 |
2 klefaskrár á 65 a., 6 pör hurðarhjörur á 40 a. | 3 | 70 |
2 pör ytri hjörur á 65 a., 1 gross skrúfur á 80 a. | 2 | 10 |
Gler, eldavjel, reykpípur, hreinsunarhurð og 2 reykhurðir | 50 | 00 |
Reykháfur, með vinnu | 40 | 00 |
Smíðakaup | 250 | 00 |
Samtals: | 1647 | 92 |
Á húsinu nr. 2 ætti framstafninn að snúa í suður. Sje annar endi baðstofunnar þiljaður af, kemur gluggi á þakið austanvert.
Hita má fá í baðstofuna á vetrum, með því að eldavjelin sje flutt inn. Einnig getur reykháfurinn verið í sama stað í húsinu nr. 2 sem í nr. 1, og hitanum hagað þar eptir. Glugga a húsi og skemmu má hafa á hliðum hússins.
Reykhlíf við reykháfinn beggja megin. Öll önnur gerð sem við hús nr. 1
Á húsi nr. 2 má ef vill setja port á baðstofuna og hækka þakið, láta bita yfir og gólf, til þess að hafa baðstofu uppi; þilja síðan þá baðstofu, sem er á uppdrættinum, í sundur, fyrir stofu, eldhús og búr, en hafa skúrana til geymslu, inngangs í húsið, fyrir svefnherbergi og fleira.
Þetta hús er einungis fyrir stór-heimili og mun reynast mjög þægilegt, hver sem það notar. Kjallari undir skemmu eða þinghúsi, hvort heldur vill öllu eða nokkrum hluta þess, og beinn stigi úr eldhúsi og niður úr ganginum, sem sjá má á uppdrættinum.
Skúr má hafa norðanvert við skemmu og búr, nema það sem gluggarnir ná til, en hafa má plankagirðing milli skúranna (með hurð) til hlífðar húsinu, ef vill.
Um ytri gerð þessa baðstofuhúss gilda sömu reglur og húsið A.
Þar sem uppdráttur af húsi nr. 3 verður notaður, er gjört ráð fyrir, að stór bær sje rofinn, og notað úr honum allt óskemmt efni, sem líkindi eru til að verði að mun, og smiðurinn gjöri grein fyrir því efni, sem vantar til húsgjörðarinnar. Þykir því engin brýn nauðsyn á sundurliðaðri áætlun.
Grunnurinn sje sem þjettast og beinast hlaðinn og úr sem stærstu grjóti, vel bundinn og jafn-stór utanmáli grindarinnar; grafinn niður fyrir öll frost (4 fet), grunnstæðið lárjett og jafnfast í sjer (þar sem því verður við komið). Sje vatnsagi nálægt hússtæðinu, verður að veita vatninu burt með lokræsum nokkuð frá húsgrunninum; ella mundi það fljótt valda kulda og raka í húsinu og feyja það. Húsgrunnar sjeu minnst 18 þml. ofan jarðar.
Þar sem enginn er kjallari undir íbúðarherbergjum, er gott að flóra neðan undir gólfslárnar, síðan hafa möl smækkandi upp eptir, 3 þml. lag af þurri ösku þar ofan á, og efst uppi undir gólfið álíka lag af vel þurru, en fornu heyi. Þá mun gólfið haldast þurrt og enginn gólfkuldi í herbergjunum. Þetta á við þar, sem jarðlagið er þurrt, en þurrkgrindur neðan undir aurslánum, þar sem raklent er, sem má opna á sumrum.
Sje kjallari undir þeim herbergjum, sem búið er í, er mikils virði, að haft sje gott millilopt (Indskud) með 2-½ þml. þykku lagi af leir. Mun það varna raka og kulda frá kjallaranum upp gegn um gólfið. Sje kjallari hlaðinn á klöpp, en vatnsagi á klöppinni undan veggnum, virðist bezt, að renna sje höggvin i klöppina með öllum þeim vegg, og við næsta vegg ræsi, hvort heldur höggvið i klöpp, eða grafið niður fyrir og hlaðið, unz komið er að þeim stað, sem hallar mest frá eða jarðlagið er mýkst. Þekja svo yfir ræsið með þurrum hellum, svo smágrjót og möl yfir kjallarann, um 4 þml. á þykkt. 3 til 4 þml. lag af mulning og þá sement (¾ sandur) jafnað yfir með trjehnyðju, seinast lag af sement (2/3 sandur). Sje uppganga víða í gólfinu, þarf að grafa fyrir ræsum og veita vatninu út undir veggina, að þeim stað, sem mest hallar frá húsinu. Þekja svo yfir ræsin með hellum o.s.frv., eins og áður er getið.
Þar sem á stöku stöðum í kjöllurum (og víðar, sem þarf að veita vatni frá) álízt að jörðin sje gljúp, sandur, möl o.fl., er lengra kemur niður, má grafa niður um 5 fet, setja þar niður 2 tunnur eða 2 kjagga hvorn upp af öðrum á endann, báða botnlausa, moka að og veita vatninu þar í og hlemm yfir. Svo langt niðri er mjög víða, sem jörðin er mjög gljúp og tekur á móti vatninu, en ekki má safnast rusl í botninn, sem hamlar vatninu að síga niður í jörðina. Verði ræsum ekki komið við út undir veggina, vegna þess að halli ekki er nægur, eða jörðin tekur ekki við vatninu gegnum kjaggana, verður að nota þessa kjagga sem vilpur og ausa þá, er þörf gerist.
Vilji menn hafa kjallara rakalausa, svo sem til íbúðar eða geymslu á kornvöru, kaffi o.fl., þarf, eins og áður er getið, smágrjót, svo möl í gólfið, þá lag af steinsteypu. Þá er steypan er þurr, þarf að bera á gólfið og sömuleiðis veggina innan sjóðandi stálbik með pensli eða sófli. Enga kalkhúð á grásteininn undir stálbikið, en sópa þarf af honum allan sand og laust sement, áður stálbikið er borið á, og sömuleiðis af gólfinu, efst sements-húð á gólfið, en kalkhúð á veggi, eða leggja gólf úr plægðum borðum, með nægilega þjettum slám undir, og veggir þiljaðir innan; en varast verður að göt eða sprungur komi á stálbikið, því það er það, sem útilokar rakann. Stálbikið borið á með suðunni og sje vel þurrt undir.
Það er ætlazt til, að þeir steinveggir, sem stálbikaðir eru, sjeu lagðir í sement eða allar holur fylltar með góðu sementi.
Að hafa húsgrindur úr veigameiri trjám, virðist ekki áríðandi; en skástoðir þurfa mjög góðar, 2 gagnstæðar á hvern veg, bæði á hliðum og göflum (þar sem því verður við komið). Skástoðirnar halda húsinu í sínum skorðum fyrir allri verulegri áreynslu, en burðarkraptinn þarf að tiltölu minni. Aurslár 5×5 þml. eða 5×6 þml. og sömuleiðis gólfslár og bitar. Sjeu stafir og lausholt of rýr fyrir uppfyllinguna, skal negla borðrenning á rönd innan á veggina til að festa þiljurnar á (til að fá vegginn þykkri).
Utan á grindina þarf 5/4 þml. borð, plægð, en óhefluð, pappi, svo og járnið. Innan pappi og þur þiljuborð innst. Utan á sperrur borð sams konar og í veggjum, og pappi undir járnið. Innan pappi og þiljur.
Upp í grindina troðið fornu en óskemmdu og þurru heyi eða vel þurrum og moldarlausum reiðing. Sje reiðingur eða torf notað í stað heysins, þarf að negla það vel þjett út í trjeð hringinn í kring, hvort heldur í veggjum eða milli sperra. Uppfylling í útveggjum 6 þml. minnst og troðið svo fast sem unnt er.
Þar sem lopt eru einföld, skal hefla og strika bita, áður reist er, og hafa lista við loptið, en uppfylling þar, sem þau eru tvöföld.
Allt járn nr. 24 skarað um 2 bárur eða 1-½ minnst. Öll þversamskeyti á þökum 4 þml. minnst, og gott tjörukítti milli laga á öllum samskeytum. Járnið þjettneglt í allar dyra-og gluggakistur; engar dyra-eða gluggaumgerðir, en vatnsborð ofan og neðan við hvern glugga. Til að negla niður brúnirnar á fyrstu og síðustu plötunni á þakinu þarf galv. nagla.
Áríðandi er að fyllt sje vel í bárurnar undir mænikjölinn með tjörukítti eða kalki og tjöru.
Að hafa blýhringi undir þeim naglahausum, sem bárujárn er neglt með, er mjög gott, en varast verður að drepa götin of stór fyrir naglana; ella mun þakið leka. Sömuleiðis er áríðandi að naglar þeir, sem bárujárnið er neglt með, sjeu ekki lengri en svo, að þeir standi ekki inn úr trjenu; verður því, þar sem er of þunnt til þess, að tylla borðrenning innan á, þar sem naglaröðin kemur í járnið.
Á gólf-og aurslár er mjög gott að bera koltjöru með nokkru af kreosótolíu saman við eða þá koltjöru og karbólineum.
Eins og áætlanirnar bera með sjer, er hvorki flutningur (aðdrættir) á efni, nje uppfylling talið með í kostnaðinum, og ekki heldur grunnhleðsla nje strompar (úr höggnu íslenzku grjóti).
Hið tiltekna verð á efniviðnum m.m. eptir áætlununum getur því að eins orðið svo lágt, sem þar segir, að menn geri samtök með sjer og kaupi sjálfir í stórkaupum; ella mun viðurinn verða minnst 15%—járnið 10%—dýrara og hitt annað nálægt 8% dýrara að jafnaði.
Gert er ráð fyrir, að allur viður sje sænskur og góður í sjer. Strompar sjeu hafðir úr íslenzku grjóti, eða þá úr eldtraustum leir; þeir fást tilbúnir í heilu lagi á Skotlandi og víðar, og eru álíka dýrir og gerðir væru úr múrsteini.
Áríðandi er, að vanda frágang á öllum lokræsum, að þau sjen traust og vel þjett. Jafnaðarlega eru notaðar til þess gleraðar leirpípur (drainrör, sewer, eða kloakrör); verð á þessum pípum fer eptir gildleika, sem á þeim er. Gildleiki á þeim, sem hingað flytjast, er 5—9 þml. (þvermál) og kosta frá 1 kr. 75 au. til 3 kr. 50 au. alinin.
Það fást einnig öðru vísi gerðar pípur. Þær eru gerðar úr eldtraustum leir og ætlaðar til reykháfa í stað múrsteins. Bretar nota þær í smáhýsi, en þó optast að eins innan í reykháfana hjá sjer, í stað kalkhúðarinnar, sem viðgengst annarsstaðar; það kalla þeir chimney clay-pipes.
Þessar pípur eru mátulega víðar og fullum þriðjungi ódýrari en reykháfar úr múrsteini, sjerstaklega vegna minni flutningskostnaðar; en brothættar eru þær og illt að gera við þær, ef bila. Frá þeim leggur mikinn hita út í herbergið sumar og vetur, og er það bæði kostur og ókostur; en aptur er hús með reykháfi úr múrsteini talið traustara og fullkomnara til vátryggingar.
Grjóthleðsla í húsgrunnum og kjöllurum er tíðast hjer í Reykjavík seld 2,75—3 kr. □ alinin í 12 þml. þykkan vegg; þar í fólgið sement og kalk, og að grafa fyrir grunni. Grjótið klofið og lagað til, áður hlaðið er. Veggir vel hlaðnir og bundnir og lagðir í sement, síðan jafnaðir að utan með sementi.
Verð á sementi er nál. 11 kr. tunnan, og endist að jafnaði í 35 □ álnir í 12 þml. þykkan vegg, auk kalks þess, sem blandað er saman við sementið, til þess að halda því nógu mjúku, meðan hver samhrærsla er unnin upp.
Aðalskilyrði fyrir góðu viðhaldi á timburhúsum í sveit og víðar er, að þeim sje jafnan haldið vel þurrum. Raki er í alla staði skaðvænn og stendur þeim fyrir þrifum, sem við hann verða að búa. Orsök raka, bæði í mannahýbýlum og fjenaðarhúsum, er sú, að hiti og kuldi mætast. Sje veggurinn kaldur í gegn eða blautur, myndast vatnið innan á veggnum, en hitinn innan fyrir ónógur til að halda innra borði veggjarins nógu heitu og þurru gegn kuldanum úr veggnum, enda þarf til þess talsverðan hita í timburhúsum, en torfbæjum lítt auðið að halda svo heitum, að raki þorni að mun, eða honum geti orðið varnað.
Hvort sem heldur er, að hiti og kuldi mætast innan á veggnum eða innan til í honum, kemur þar fram raki (væta), og feyir þann við á skömmum tíma, sem hann nær út yfir. Raki kemur og allopt af leka, einkum í bæjum.
Til þess að varna raka í húsum, þarf ytra borð veggjarins að vera nógu þjett til að byrgja kuldann úti, og innra borðið nógu veigamikið til þess að innibyrgja hitann; bæði ytra borðið og innra þurfa að vera svo þjett, að þurrt og kyrrt lopt sje í miðjum veggnum. Eða þá eitthvert vel þurrt efni í miðjum veggnum, sem skilur á milli hita og kulda. Til þess má nota hey, torf, reiðing eða mosa, en hvað af þessu sem notað er, þá er aðalskilyrðið, að það sje vel þurrt, og heyi og mosa troðið fast. Þannig smíðuð timburhús verða bæði laus við raka og auk þess hlý.
Eins og áður er á vikið, ríður mjög á því að húsum sje haldið vel þurrum, og það á hvaða tíma árs sem er. Sömuleiðis að engin óhreinindi safnist, sízt í afkyma og skúmaskot. Iðulega borin feiti á allar skrár og lamir, einkum utan húss. Farfi ekki látinn flagna af viði neinstaðar að utan, og þessa sízt kítti látið losna af rúðum; undir eins umbætt, ef eitthvað verður að. Hringir látnir milli hjara, ef hurðir síga. Aldrei skyldi bera sand á gólf, heldur hlífa því með strigaleppum, mottum eða ábreiðum. Engin naglahöfuð nái að ryðga utanhúss; þá ónýtist naglahöfuðið og missist þá það hald, sem naglanum er ætlað. Fyrir það gliðna svo borð og aðrir viðir í húsinu sundur og koma fram rifur; ágerist það því fljótar, sem vatn og vindur getur neytt sín meir; liggur þá húsið von bráðar undir skemmdum.
Hús A
- 6×8 álnir
Hús B
- 7×9 álnir
Hús C
- 9×10 álnir
Hús D
- 10×10½ álnir
Hús E
- 10×11½ álnir
Hús F
- 11×12½ álnir
Baðstofuhús 1
og
2